Hamar
30.03.2011 08:33:49 / Hamar7

Foreldrafundur

Heil og sæl öll.

Við höldum sameiginlegan foreldrafund yngri flokka fimmtudaginn 31. mars kl. 20:00  upp í Vallarhúsi og gefum m.a. iðkendum eldri keppnisbúninga.

Vonandi komast allir. 

Bestu kveðjur,

Óli Jó


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.01.2011 11:39:07 / Hamar7

Gleðilegt ár

Nú fara æfingar af stað aftur eftir jólafrí.
Æfingatímar eru eftirfarandi.
Mánudagar 14:50- 15:50 æfing úti á gerfigrasi. Ath. vera vel klædd.
Föstudagar 12:50 - 13:50   inniæfing.
Sunnudagar 10:00- 11:00   inniæfing
.

Stefnt er að því nú í janúar að fara til Þorlákshafnar og spila við þá fótbolta og fara svo saman í sund.  Meira um það síðar.

Endilega muna eftir íþróttaskóm og íþróttafatnaði.
Sjáums hress.  Þjálfarar.



» 13 hafa sagt sína skoðun

30.11.2010 10:39:06 / Hamar7

Jólagleði

Jólamót knattspyrnudeildar Hamars

laugardaginn 4. desember í íþróttahúsinu
Kl. 13:00 – 14:00         1. + 2. + 3. bekkur

Kl. 14:00 – 15:00         4. + 5. + 6. bekkur

Kl. 15:00 – 16:00         7. + 8. + 9. + 10. bekkur

 Drengja- og stúlknaflokkar eru saman

Skipt verður í lið á staðnum

Mæta í búningum og/eða með jólasveinahúfur

Veitingar fyrir foreldra – kaffi og piparkökur

Mæta öll með góða skapið J


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.11.2010 08:46:08 / Hamar7

Æfingar og mót í nóvember

Æfingar Ganga vel og halda áfram að fullum krafti í nóvember og einnig er stefnan að taka þátt í smá móti á Akranesi þann 21. nóv. Meira um það síðar.

Að gefnu tilefni vil ég minna á að börnin séu í viðeigandi klæðnaði á fótboltaæfingum. Á útiæfingum eru sumir í stígvélum eða kuldaskóm sem henta illa í fótbolta og þegar það viðrar þannig þá er hægt að vera með léttari skó með sér.
Eins er æskilegt að á föstudagsæfingum séu börnin með sér íþróttaföt og eins hjálpar það börnunum mikið ef þau eru í innanhússskóm, þar sem boltarnir eru harðir og sárt getur verið að sparka í boltann.
                          Kær kveðja Jónas

» 12 hafa sagt sína skoðun

12.10.2010 09:14:04 / Hamar7

Áskorun

Á sunnudaginn næsta kl 10:00 langar okkur í 7. flokki að spila fótbolta  við foreldra eða systkini og sýna hversu góðir við erum orðnir. Leikurinn stendur þó ekki lengi þannig að mótherjar þurfa ekki að æfa sig sérstaklega fyrir það. Vonandi vilja sem flestir taka þátt.

Að gefnu tilefni þá minni ég á að þegar æfingar eru inni í íþróttahúsi og þá sérstaklega föstudagsæfingar þá er nauðsynlegt að mæta með íþróttaföt og íþróttaskó.

Bestu kv. Jónas

» 13 hafa sagt sína skoðun

29.09.2010 17:07:13 / Hamar7

HSK moti frestað

Þvi miður verður ekkert af HSK motinu um helgina vegna litillar skraningar.
Æfing verður a föstudag kl 12:50 og a sunnudag kl:10:00

HSK motið verður sett a vonandi fljotlega, en a meðan ætlum við að vera duglegir að æfa okkur. 
Kv. Jonas

» 12 hafa sagt sína skoðun

27.09.2010 13:04:32 / Hamar7

Æfingar í vikunni og HSK mót

Æfing í dag mánudag. kl:14:50 á gervigrasi
Æfing á föstudag 12.50   íþróttahús
Hsk mót á Laugardaginn frá 10:00-12:00. Meira um það síðar.
 Frí á sunnudagsæfingu.

Muna eftir klæða sig eftir veðri og íþróttaskóm.
Sjáumst hressir Kv. Jónas

» 13 hafa sagt sína skoðun

16.09.2010 13:13:44 / Hamar7

Nýtt tímabil að hefjast í Knattspyrnu

Æfingar hjá 7. flokki verða á eftirfarandi tímum í vetur:

Mánudagar 14:50-15:50   Alltaf úti á gervigrasi. Muna eftir réttum klæðnaði og skóm.

Föstudaga 12:50- 14:00  Inni í íþróttahúsi.

Sunnudaga 10:00-11:00 Inni í íþróttahúsi.  Foreldrar velkomnir upp á palla.

2. október verður farið með strákana á Selfoss þar sem þeir fá að keppa við aðra jafnaldra á HSK móti.  Meira um það síðar.

Endilega kíkið á þessa bloggsíðu til að sjá tilkynningar og einnig er stefnan að setja myndir og annað skemmtilegt á síðuna.

Kv. Jónas þjálfari. sími: 692-3275

» 13 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 08:47:02 / Hamar7

Foreldrafundur

Miðvikudaginn 19. maí n.k. verður foreldrafundur allra yngri flokka Hamars í knattspyrnu haldinn í vallarhúsinu við Grýluvöll. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður um klukkustundar langur, en þar munu þjálfarar fara yfir mikilvæg mál fyrir komandi keppnistímabil, s.s.  æfingatíma, mót sumarsins, fjáraflanir ofl. Fulltrúar stjórnar verða einnig á staðnum. Mikilvægt er að foreldrar mæti á þennan fund.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og bestu kveðjur,
Ólafur Jósefsson
Yfirþjálfari yngri flokka
Gsm. 821 – 4583


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.12.2009 14:38:10 / Hamar7

J-Óla - kveðja

Fyrir hönd knattspyrnudeildar Hamars óska ég öllum iðkendur, foreldrum, þjálfurum, stjórnarmönnum og styrktaraðilum deildarinnar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökk fyrir árið sem er að líða.

Bestu jólakveðjur,

Ólafur Jósefsson

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.09.2009 14:39:55 / Hamar7

Nýir Æfingatímar

7. flokkur drengja og stúlkna (2002-2003)
Æfingagjald til áramóta: kr. 7.500.-

Miðvikudagar 12:40-13:20 Íþróttahús
Föstudagar 12:40-14:00 Íþróttahús

Þjálfarar



Ágúst Örlaugur Magnússon, Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir, Jónas G. Jónsson og Ólafur Jósefsson.





Flestir flokkar munu æfa utanhúss í september, en ný æfingatafla verður gefin út í byrjun
október þegar æfingar færast inn í íþróttahúsið.







Æfingar hefjast þriðjudaginn 8. september








Skráning iðkenda fer fram hjá þjálfurum og yfirþjálfara.










» 12 hafa sagt sína skoðun

23.08.2009 15:08:20 / Hamar7

Nýjir Æfingatímar

Vegna þess að skólinn er byrjaður bæði hjá mér og hjá ykkur þá breytist æfingataflan. Við fækkum æfingunum í tvær á viku.
Æfingar eru áfram á grasinu við Ullarþvottarstöðina.

Þriðjudagar 15:30-16:30
Fimmtudagar 15:30-16:30

Látið þetta berast til krakkanna í skólanum.

Kv. Ómar Ingi Guðmundsson 867-1118

» 11 hafa sagt sína skoðun

05.06.2009 11:46:18 / Hamar7

Ný Æfingatafla

7.flokkur Ný æfingatafla

 

Þessi æfingatafla gildir fyrir allt sumarið og munu allar æfingar vera á grasinu fyrir neðan Hamarinn við gömlu ullarþvottastöðina

 

Mánudagur 12:30-13:30

Miðvikudagur 12:30-13:30

Fimmtudagur 12:30-13:30

 

Forföll og aðrar upplýsingar í 867-1118, maringi@hotmail.com">omaringi@hotmail.com    eða hamar7.central.is

 

Kv. Ómar Ingi


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.05.2009 22:29:04 / Hamar7

Kjörís mótið í Þorlákshöfn

Á laugardaginn n.k er mót í Þorlákshöfn sem að Hamar og Ægir halda saman. Allir fá að spila nóg og fullt af fjöri.

Það er mæting kl.10:20 í Þorlákshöfn og eiga strákarnir að koma sé sjálfir á staðinn, mótið er búið kl.14:00
Ég vil hvetja foreldra til að hringjast á og reyna að taka sem flesta með sér í bíla og foreldrar þeirra sem fá far geta þá kannski endurgoldið greiðann næst þegar við spilum.

Forföll skal tilkynna hér í skoðun , með smsi eða tölvupósti á maringi@hotmail.com">omaringi@hotmail.com

Kv. Ómar Ingi Guðmundsson

» 11 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 16:34:39 / Hamar7

Æfingaleikur og 1.maí

Ég var rosalega ánægður með ykkur á Selfossi í dag og vonandi getum við gert meira af því að fara í heimsókn til fleiri liða og spila.

Það er frí á æfingu föstudaginn 1.maí og því er næsta æfing á laugardaginn kl.10:00-11:00 á gervigrasinu fyrir utan íþróttahúsið

Kv. Ómar Ingi


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 8408
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.